Innrás!!
ennþá veik...mamma og tinna heima og við höfum orðið fyrir innrás, núna fyrir 2 mínútum komu tveir verkamenn hingað inn á okkur mömmu þar sem við römbuðum hálfsofandi á eitthvað matarkyns í eldhúsinu! það er nefnilega verið að flísaleggja eldhúsið okkar og því er þetta EKKI góður tími til að vera veikur, ég er nú samt öll að hressast:) Mig dreymdi hugmynd að tónlistarmyndbandi fyrir Metallica, þetta var helvíti flott, kannski ég sendi þeim hugmyndina! Tinna liggur á gólfinu fyrir aftan mig og horfir á mig ásökunaraugum! eins og það sé mér að kenna að allt þetta fólk skuli vera heima og enginn nenni út með hana!!
ég er búin að lesa niður að kafla 15 í Pride and Prejudice og verð að segja, mér finnst þetta skemmtieg bók, soldið spennandi en það gerist allt svo hægt!! arg mann langar að fara inn í söguna og segja við Mr. Darcy: hættu þessum kjánaskap og játaðu að þú ert yfir þig ástfanginn! ...ég skal ekki tala meira um þetta, ég er ekki viss um að þeir sem lesi þetta deili áhuga mínum á þessari bók:s
ég ætla að fara í AOE og halda áfram að rústa kastalaveldi kínverja! hei fyrsti MSN félagi morgunsin var að signa sig inn! jeij:) bæjóspæjó

1 Comments:
At 10:19 f.h.,
Halla said…
ef þið munið skilja eitthvað í því sem ég segi á þessu bloggi eigiði hrós skilið! ég var að lesa þetta yfir og ég skildi ekkert í þessu!!! hhaha
Skrifa ummæli
<< Home