Silly Billy

föstudagur, janúar 07, 2005

Stjörnuspár+Draumar

þetta eru soldið merkilegir hlutir, eða hvað??
í nótt dreymdi mig að ég var á svona reunion með árgangnum mínum úr grunnskóla og þetta var haldið á einhverjum bar. ég man bara eftir að ég fór á barinn til að kaupa mér bjór og þegar ég tók upp veskið mitt var það gjörsamlega úttroðið af þýskum peningum!! einhverjir íslenskir seðlar og klink í bland en aðallega samt mörk (þetta voru ekki evrur, heldur gömlu mörkin) og konan sem vann á barnum sagði: "Vá! þú ert ríkari en Donald Trump!"
þegar ég vaknaði fletti ég upp í draumabókinni og samkvæmi merkir rifrildi og leiðindi framundan nema teitið sé mjög skemmtilegt, og þetta var ekkert sérstakt:( peningar standa fyrir lukku:) hvað les maður útúr svona vilteysu!!??
svo sagði stjörnuspáin mín fyrir árið að peningamál og ástarmál yrðu blómleg á árinu og einhver stór skuldbinding væri framundan í ástarmálum?!! *gúlp*
P.S. það er búið að gleypa mig í heim stafrænna myndavéla!!! hjálp!

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home