Silly Billy

miðvikudagur, september 22, 2004

tónlist

mér finnst svo skrýtið hvað tónlist hefur mikil áhrif á mig, miklu meiri áhrif en orð eða kvikmyndir eða bara eitthvað annað!! ef mér finnst texti fallegur þá get ég mjög auðveldlega farið að gráta, ég var sem sagt að hlusta á eminem: halie´s song, mér finnst textinn svoooo fallegur og eminem er reyndar annar tveggja uppáhalds rapparanna minna (hinn er snoop dogg) og mér finnst flest allt sem hann gerir flott en þetta er langbesta lagið með honum, tvímælalaust!
svo snertir child in time með deep purple mína innstu hjartastrengi, en það er eiginlega bara lagið sjálft, söngurinn og hljóðfærin en ekki textinn sem snertir mig...
...það er reyndar svolítið fyndið að fyrir svona 19 mánuðum, næstum uppá dag, þá heyrði ég fyrst í deep purple, ég hafði aldrei heyrt einu sinni minnst á nafnið! það var heima hjá Tinnu, við vorum að hita upp fyrir partí sem var um kvöldið, annaðhvort fyrirpartí fyrir árshátíðina eða afmælið hennar Tinnu... og Tinna setti Deep Purple plötu (ekki CD) á og byrjaði að slamma;) ég sagði: hvað er þetta?? hún nottla geðveikt hneyksluð: DeepPurple!! ég: hvað er það??? hún ennþá hneykslaðri: VEISTU EKKI HVAÐ DEEP PURPLE ER??? (svo kallaði hún á bubba) BUBBI, ÞÚ ÞARFT AÐ KYNNA HANA FYRIR DEEP PURPLE!!!
...svo gerði hann það og við fórum á tónleikana þeirra að sjálfsögðu:) hrein snilld!!
skemmtilegt að rifja upp svona hluti það hefur nefnilega svo óendanlega mikið breyst alveg síðan ég byrjaði í MH...þar byrjaði það allt...kynntist tinnu, hún var með aflitað hár og helga LA benti á hana og sagði: þetta er tinna tví... ég nottla voða saklaus: afhverju tví???...svo fórum við krissa að heimsækja tinnu í jólafríinu...opnuðum herbergisdyrnar hennar og löbbuðum á vegg af strákasvitalykt!! þar inni voru hvorki meira né minna en 9 strákar!!...ég held að flestir viti hvað varð úr því! (ég kynntist bubba;)

1 Comments:

  • At 1:10 e.h., Blogger Halla said…

    er u-know-who með einhverja frekju?!! sú fær að kenna á því þegar ég kem..sem verður vonandi á morgun:)

     

Skrifa ummæli

<< Home