Silly Billy

sunnudagur, janúar 16, 2005

Peningaleysi sökkar!

skrýtið hvað maður er alltaf á fullu um helgar án þess að gera eitthvað af viti!
dagurinn líður hratt því maður er að redda öllu fyrir kvöldið og svo fer kvöldið, nóttin og allur dagurinn eftir í að djamma, sofa og jafna sig...HELGIN BÚIN! -kræst
ég er ekki búin að læra neitt, ég á 8500 kr. til að kaupa árshátíðarkjól og líffræðibók! og nema ég finni kjól á 1500 kall þá er þetta ekki að virka:s held ég fresti líffræðibókarkaupum til mánaðarmóta, mikilvægara að redda kjól á útsölunum;)
í morgun var ég að baka amerískar pönnukökur á brjóstahaldaranum!! hahahha, mér var svo heitt og ég var bara með stelpunum svo þetta var bara fínt, það er alveg frekar þægilegt að vera léttklæddur við rétt hitastig. ég væri alveg til í að flytja til svona eyðieyju þar sem er alltaf svona 30-40 stiga hiti og vera alltaf bara nakin:)
-ég vil skila MIKLUM ÞAKKLÆTISKVEÐJUM til Ingó því hann bjargaði mér og grétari í gær:D okkur var kalt, við vorum þreytt niðrí bæ og aleiga okkar samanlagt var 300 kr! (var bara að fá 8500 kallinn áðan) þegar maður er svona staddur þá fer maður í gegnum símaskrána sína og reynir að finna einhvern sem getur hugsanlega sótt mann! Ingó kom og keyrði okkur heim og hann er æði, takk Ingó:)
ef þið viljið byrja að kaupa afmælisgjafir handa mér er kominn óskalisti;)
CD´s : The very best of Sheryl Crow, Joss Stone (eldri diskurinn), mugison, eminem show, halli og laddi - roy rogers
Græjur, keramiksléttujárn, DJAMMBOLIR! (ég á enga!), föt, make-up dót, sætir hlutir:)

1 Comments:

  • At 11:00 e.h., Blogger Halla said…

    þúrt klikk! kynlíf með sama kyni er fínt, en ég veit sosem ekki hvað ég hef að gera með 30 sekúndur af því!!!
    hahahha!:D

     

Skrifa ummæli

<< Home