Silly Billy

fimmtudagur, september 30, 2004

Pride & Prejudice

ég er komin að 42. kafla í þessari yndislegu bók sem ég er að lesa í ensku 403. við erum líka að horfa á myndina/þættina þar sem Colin Firth og Jennifer Ehle leika Mr. Darcy og Elizabeth. Þar sem Colin Firth (ef einhver veit ekki hver Colin Firth er þá lék hann í Bridget Jones´s Diary og Love Actually) er að leika Darcy er mér lífsins ómögulegt að sjá nokkurt galla á persónunni!! ég get fundið, og það mjög auðveldlega, afsakanir fyrir öllu sem hann "gerir af sér" ! þetta er ekki svo gott því kennarinn virðist sjá bókina með mjög hlutlausu viðhorfi og finnst Darcy vera langt frá því að vera gallalaus:s Colin Firth er nefnilega ótrúlega myndarlegur! og auk þess hef ég aldrei séð hann leika aðra persónu en "góða kallinn" og þessa rómantísku þöglu týpu...hvað er betra??? annars nóg um þetta...
ég ætlaði að skrifa svo mikið í dag...það er allt dottið úr mér:( ég get reyndar minnst á það að það eru ekki nema 6 DAGAR þangað til ég fer til LOS ANGELES!!! þið sem eruð þreytt á að vera sífellt minnt á þessa frekar öfundsverðu staðreynd (öfundsverð staðreynd?!? er það til?) verðið bara að þola það því ég hætti ekki að tala um þetta fyrr en 20 nóv. -þá verður nógu stutt í prófin svo ég get byrjað að tönnlast á þeim;)

-fróðleiksmoli: Colin Firth á afmæli sama dag og Tóta og Gunnar stjúppabbi minn:)

-ég vil nýta tækifærið og skila ástarkveðjum til Krissu vinkonu minnar! ÉG ELSKA ÞIG KRISSA:*:*:*

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home