Silly Billy

mánudagur, nóvember 29, 2004

Föðursystir!

nú er Óskar Guðlaugsson, bróðir minn, orðinn faðir! (þar með er ég orðin föðursystir, fyrir ykkur minna gáfuðu;)
jamm, það er svo mikið búið að gerast í lífi mínu undanfarið að ég held ég segi ekkert frá því! Múhahahha! ég er allavega búin að rífa mig uppúr ,,djammlægðinni" sem stóð yfir að mér fannst í heldur langan tíma! alveg nokkra mánuði! nú er ég vöknuð og komin á kreik;)
desember byrjar á hinn daginn og prófin líka! alltaf að skemma þennan æðislega mánuð með svoleiðis leiðindum:( núna á ég að vera að læra fyrir próf en er í staðinn í tölvunni og mig langar í nammi..hmm, fara út með tinnu? og koma óvart við í sjoppunni? og svo kem ég auðvitað inn endurnærð og fer beint að læra!
einu atviki skal ég segja ykkur frá sem átti sér stað s.l. fimmtudag kl. 11:30, staðsetning: MH (40-stofugangurinn). Ég þurfti að skrópa í þýsku því ég hafði misbókað mig í tvöfalt yndislestursviðtal kl.11:30. en þar sem ég var á síðasta séns í yndislestri varð þessu ekki frestað svo ég mætti bara ekkert í þýsku( Eva þýskukennari er ekkert hrifin af rápi). ég var að labba framhjá tröppunum þegar samnemandi minn úr þýsku kallaði á mig úr stiganum og ásakaði mig um skróp! (hann leit gjörsamlega framhjá þeirri augljósu staðreynd að hann var líka að skrópa og gæti því ekkert verið með derring!) ég sagði bara hæ og útskýrði lauslega fyrir honum að þetta væri "óvart og nauðsyn og sérstakt yndislestursproblem" en hann rak í rogastans og kváði: "Yndislestur? bíddu, ertu ekki á fyrsta ári??" KRÆST!!!! er ég ekki farin að þroskast ennþá?? busi?? nei hættu nú alveg, mér finnst að þó að ég sé í þýsku 103 þá eigi samnemendur mínir einmitt að sjá augljóslega hvað ég er eldri og þroskaðri! líta upp til mín og helst vera hræddir! en það vantar ekki hugrekkið í þessi ungviði nú til dags og krakkar eru gjörsamlega hættir að bera virðingu fyrir eldri unglingum/fullorðnum einstaklingum.
ef þið viljið restina af sögunni þá er hún svona: ég svaraði: nei! ég er á þriðja ári! hann: ÓÓÓóóó....
ENDIR.

mánudagur, nóvember 08, 2004

Klikkun!

Jæja, langt síðan síðast... sökum þess að ég hafði EKKERT gott að segja! þið hefðuð öll orðið þunglynd í vetur og skemmd fyrir lífstíð ef ég hefði bloggað! en nóg u mþað... betri tímar framundan:) (er það ekki eitthvað lag??)
Í dag var mín fyrsta skólatilraun eftir "aðgerðina" (úúú...;) og það gekk ágætlega í fyrsta tíma en eftir svona 5 mínútur í öðrum tíma kom brjálæðislegur verkur í magann! áááiiii! ááááiiii!!! mikið vont, ég fór niður á borð lagðist niður en þegar verkurinn ætlaði ekki að fara við það ákvað ég að ekki væri annað hægt að gera í stöðunni en að hringja í mömmu sem var stand-by að koma að sækja mig sem hún gerði auðvitað (þessi engill). Á meðan ég beið fór ég að gráta og eftir smá stund fór verkurinn! en ég ákvað að fara samt heim, ég var eftir mig eftir þessar raunir og fann enn fyrir óþægilegum spenningi í maganum... á leiðinni heim var þetta greint sem krampi af völdum stress(s) og ég ætti bara að leggja mig og reyna að slappa af. ég fór ekki strax að sofa því mig langaði að lesa í Kular af degi en eftir smá stund var ég alveg að sofna og þá dreymdi mig eitthvað það hræðilegasta sem mig hefur dreymt!!! það voru blóm að vaxa aftan úr hausnum á mér og þegar ég fór að slíta þau kom í ljós að mikill gróðurvöxtur! og það sem verra er, við hverja rót var hola inn í hausinn og allt orðið svona grænt og holótt! ég fríkaði og fór að slíta allt saman en þá voru bara holurnar eftir og ekkert hár! ég hélt að líf mitt gæti aldrei orðið gott aftur og þessi draumur var svo raunverulegur! shit!
en ég vaknaði og hausinn á mér er alveg eins og hann á að vera:) hjúkk!

P.S. Krissa er að fara að flytja!! ég býst við að bílskúrinn hennar verði svona official byrja-að-drekka-staður;)