Silly Billy

fimmtudagur, janúar 27, 2005

Félagslíf vs. Skóli

það er stóra spurningin, hvort er mikilvægara??? hmmm... ég ætla að sleppa því að svara þessarri spurningu...
best að njóta félagslífsins og reyna bara að sleppa sem auðveldast frá skólanum;) hehehe
ohh! það er bögg þegar hljóðið í tölvunni virkar ekki! það var sko verið að setja upp svona tölvu-hillu-skáp hérna og allt var nottla tekið í sundur á meðan, og núna virkar hljóðið ekki! arg! ef einhver er gúrú í svona málum, er hjálp vel þegin!!

sunnudagur, janúar 16, 2005

Peningaleysi sökkar!

skrýtið hvað maður er alltaf á fullu um helgar án þess að gera eitthvað af viti!
dagurinn líður hratt því maður er að redda öllu fyrir kvöldið og svo fer kvöldið, nóttin og allur dagurinn eftir í að djamma, sofa og jafna sig...HELGIN BÚIN! -kræst
ég er ekki búin að læra neitt, ég á 8500 kr. til að kaupa árshátíðarkjól og líffræðibók! og nema ég finni kjól á 1500 kall þá er þetta ekki að virka:s held ég fresti líffræðibókarkaupum til mánaðarmóta, mikilvægara að redda kjól á útsölunum;)
í morgun var ég að baka amerískar pönnukökur á brjóstahaldaranum!! hahahha, mér var svo heitt og ég var bara með stelpunum svo þetta var bara fínt, það er alveg frekar þægilegt að vera léttklæddur við rétt hitastig. ég væri alveg til í að flytja til svona eyðieyju þar sem er alltaf svona 30-40 stiga hiti og vera alltaf bara nakin:)
-ég vil skila MIKLUM ÞAKKLÆTISKVEÐJUM til Ingó því hann bjargaði mér og grétari í gær:D okkur var kalt, við vorum þreytt niðrí bæ og aleiga okkar samanlagt var 300 kr! (var bara að fá 8500 kallinn áðan) þegar maður er svona staddur þá fer maður í gegnum símaskrána sína og reynir að finna einhvern sem getur hugsanlega sótt mann! Ingó kom og keyrði okkur heim og hann er æði, takk Ingó:)
ef þið viljið byrja að kaupa afmælisgjafir handa mér er kominn óskalisti;)
CD´s : The very best of Sheryl Crow, Joss Stone (eldri diskurinn), mugison, eminem show, halli og laddi - roy rogers
Græjur, keramiksléttujárn, DJAMMBOLIR! (ég á enga!), föt, make-up dót, sætir hlutir:)

föstudagur, janúar 07, 2005

Stjörnuspár+Draumar

þetta eru soldið merkilegir hlutir, eða hvað??
í nótt dreymdi mig að ég var á svona reunion með árgangnum mínum úr grunnskóla og þetta var haldið á einhverjum bar. ég man bara eftir að ég fór á barinn til að kaupa mér bjór og þegar ég tók upp veskið mitt var það gjörsamlega úttroðið af þýskum peningum!! einhverjir íslenskir seðlar og klink í bland en aðallega samt mörk (þetta voru ekki evrur, heldur gömlu mörkin) og konan sem vann á barnum sagði: "Vá! þú ert ríkari en Donald Trump!"
þegar ég vaknaði fletti ég upp í draumabókinni og samkvæmi merkir rifrildi og leiðindi framundan nema teitið sé mjög skemmtilegt, og þetta var ekkert sérstakt:( peningar standa fyrir lukku:) hvað les maður útúr svona vilteysu!!??
svo sagði stjörnuspáin mín fyrir árið að peningamál og ástarmál yrðu blómleg á árinu og einhver stór skuldbinding væri framundan í ástarmálum?!! *gúlp*
P.S. það er búið að gleypa mig í heim stafrænna myndavéla!!! hjálp!