Silly Billy

mánudagur, júlí 24, 2006

Have a nice day

Góðan og blessaðan daginn:D

sunnudagur, júlí 23, 2006

snillingamæðgur!

Þær Sigurbjörg Erla Egilsdóttir og móðir hennar, Margrét eru BARA snillingar!! vá! ég veit ekki hvort ég þori að segja þetta á blogginu en þær voru að brillera á laugardagskvöldið:) sigga var að reyna að útskýra í símann fyrir mömmu sinni hvernig hún ætti að opna gmail með explorer!!! það tók sko alveg tímann sem það tekur að aka úr hafnarfirði og lengst inní kópavog! vá hvað ég hló mikið!! og grét allt make-up burt! svo afþví að sigga hló líka þegar ég hló svona mikið þá hélt mamma hennar að hún væri að stríða sér og sagði henni að hoppa uppí rassgatið á sér og skellti á!!! hahahahhahha:D

mánudagur, júlí 17, 2006

rugl

já................
ég veit ekki alveg afhverju ég er að blogga.. hef alveg minnst lítið gott að segja, samt furðu mikið! ég á nefnilega svo gott að það er ekki lýsanlegt.. og það er alveg stórfurðulegt hvað maður getur haft það rosalega gott og samt liðið eins og næsti andardráttur verði of erfiður:( úff hvað mér brá! það er fiðrildi á músamottunni!!! hahaha að skríða um... það veit kannski eitthvað um það hvernig mér líður, ég held að vinir mínir bestu hafi sent mér það:) ég hef allavega aldrei mætt fiðrildi hérna á músamottunni áður! þetta getur ekki verið bara tilviljun;) the day of no coincidence! :D
vá! steikta dæmi að ég skildi segja þetta um þennan dag! dagurinn byrjaði í þynnku, svo var ég allt í einu á lausu og svo borðaði ég geðveikan mat og fór í sund og svo pool.... og núna sit ég í kósí fötunum mínum í tölvunni, búin að gráta maskarann minn niður, bara svona til að vera við hæfi;) og er búin að downloada tveimur grenjulögum í viðbót á i-podinn minn svo ég geti nú örugglega náð koddaverinu vel doppóttu í nótt... steik steik
afhverju er ég að djóka svona í kringum þetta? vá mikið er ég viss um að fólki finnist þetta sorglegasta færsla ever.......................bleeeeeeee

laugardagur, júlí 15, 2006

steik

við sigga fórum að hugsa um það í dag ef við værum tónlistarkonur. hvernig tónlist myndum við gera??!? hahahahha! steiktustu tónlist ever! það yrðu allavega svona bjölluhljóð einhver og mjálm og voff.... örugglega konfekt fyrir eyrun:)
okei, ég vil koma með smá tilkynningu/afsökunarbeiðni: christian marínó friis nielsen. sorry hvað ég er búin að vera grimm við þig hérna á blogginu mínu:s þú ert gull af manni ástin mín:******

föstudagur, júlí 14, 2006

love generation

það er engin tilviljun að þetta er "kanarílagið" umtalaða... við erum af ástarkynslóðinni! allavega komst ég að því í gær að við sigga (og þar af leiðandi krissa og inga og co) erum mjög sjaldgæft fyrirbæri... við erum einar af fáum manneskjum sem eftir eru í heiminum með nágrannakærleik í hjarta! hvenær í fjandanum hætti það að vera sjálfsagt að hjálpa ókunnugum???? kannski getur christian svarað þessu þar sem hann er búinn að losa sig við sinn nk (nágrannakærleikur)!!! hmm..
mig langar stundum að brenna alla peninga í heiminum og leggjast í grasið og horfa á skýin. afhverju ekki?? ég ekki skilja.... afhverju getum við ekki verið hamingjusöm í friði? við þurfum alltaf að láta leiðinlegu hlutina trufla okkur! ég gubba yfir þetta! með hamborgara í annarri og hina í kokinu;) hihihi.. smá skot á siggu litlu:)
ok, rugl postur.....WHATEVER!!!!!!!!!!!

miðvikudagur, júlí 12, 2006

LimeWire

þetta forrit var gert handa mér:D vííí...
úff, ég var að borða bjúgu í fyrsta skipti í mjööööööööög langan tíma! ég var nefnilega búin að ákveða að mér fyndist þau ógeðsleg, sem þau eru auðvitað, en þar sem ég hef nýlega greinst með átsýki þá ákvað ég að matur er matur og hann er bara GÓÐUR! við sigga þurfum að leggja okkur inn eða að gefa skít í þetta og verða 100 kíló, það vantar allavega ekki mikið uppá hjá mér! *gúlp*
afhverju hefur enginn sagt manni að það er ekkert sniðugt að vinna með kærastanum sínum! eða allavega útskýrt afhverju?!?! sko... annaðhvort kelar maður allan daginn eða rífst, og þar sem ég á kærasta sem getur verið soldið svona.. hmm.. skrautlegur í skapinu... þá...já, best að segja ekki meir, no hard feelings chrissi minn:)
jæja, ég ætla að hætta þessu tilganglausa kjaftæði og fara í göngutúr með einu tveimur vinkonum mínum með bein í nefinu! sölku og sollu. sigga er með ívari (gubb) ;) og krissa er náðarsamlegast að leggja sig! fjandinn hafi leti! inga maría er að vinna svo hún er afsökuð;)

sunnudagur, júlí 09, 2006

Heim

ég er komin heim í heiðardalinn, komin heim með slitna skó! já, þessar línur söng ég þegar ég flaug yfir landið okkar íðilfagra á föstudagskvöldið:) heimferðin var vægast sagt tímafrek: lagði af stað með stelpunum útá flugvöll um fimmleytið á dönskum tíma á fimmtudaginn og kom svo heim rétt fyrir tíu á ísl. tíma á föstudaginn!! já, kastrup og iceland express eru greinilega ekki að virka vel saman:s
eftir þessa æðislegu ferð er ég þremur kjólum, þremur peysum, bikini og mikið meira af fötum sem ég hafði ALLS ekki efni á, ríkari! en þetta eru smámunir miðað við andlegan og tilfinningalegan gróða! :D:D:D líf mitt er sem sagt alveg æði og ég á besta kærasta, bestu vini og bestu fjölskyldu sem hægt er að hugsa sér! OG mér finnst gaman í vinnunni! hahahaha!!!
yfir í annað: ég býð 10.000 kr í verðlaun fyrir þann sem getur sagt mér hvað þarna ítalski gaurinn sem ég man ekki hvað heitir sagði við Zidane í úrslitaleiknum!!!
P.S. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir er frá öðru sólkerfi, það er komið á hreint!! það getur ekki verið til lífsglaðari manneskja í þessari veröld! :D:D elska þig snúlla;)