Silly Billy

fimmtudagur, desember 30, 2004

jafnvægi

er vandfundinn hlutur! ég sé ekki fram á jafnvægi í bráð... kannski það sé bara ágætt, þá getur maður ekki hugsað skýrt og verður þar af leiðandi ekki skynsamur=DJAMM!

en annars er svosem allt ágætt í fréttum, það á að skíra bróðurson minn þann 2. jan og ég þarf btw að redda fríi í vinnunni:s sem er svolítið vandræðalegt því ég vildi ekki vinna neitt á milli jóla og nýárs og svo ætla ég að fá frí fyrsta daginn á árinu:s
við skulum tala um eitthvað skemmtilegra en vinnuna, frekar það að mig dreymdi að ég átti að hringja í bandaríkjaforseta en ég átti ekki inneign! og svo var ég líka á verslóballi í ullarpeysu og allir horfðu undarlega á mig og sumir dirfðust til að segja við mig að þetta væri ljót peysa! en ég sagði þeim bara að mér fyndist hún ógeðslega flott! og hananú!
nóg komið af draumförum...back to reality:) hverjum langar að bjóða mér, krissu, guðrúnu, ingu þóru, grétari og tinnu (kannski bjarka) í partí á gamlárskvöld??? heheh er það ekki spennandi partíhaldarar?? mér finnst það!

ég vil nota tækifærið og þakka hjalta fyrir góðan bústað og mjög góða mjólk, hafði hana útá cheeriosið í morgun;)

mánudagur, desember 27, 2004

Að...

...djamma er ÆÐI!!!
...gera nákvæmlega það sem maður vill er það BESTA!!!
...sofna í kúri er gaman:) (guðrún er mjög góður kúrari! -og kyssari;)
...eiga frábæra vini er...
ég meina það líf mitt er ein hamingja núna:D:D:D:D

föstudagur, desember 17, 2004

viðbót

við gjafalistann, mig langar í disk með Joss Stone, veit ekki hvort hún hefur gefið út fleiri en einn en ég vil allavega þann sem inniheldur lagið "superduper love". hvað finnst ykkur um þessa tísku að vera í gallabuxum og hafa stígvél yfir?? ég get ekki myndað mér skoðun en nú á ég svona útistígvél (flatur botn) sem mig langar að vera oftar í en þegar ég er í pilsi og því er þessi tíska góð lausn, en spurningin er: er þetta flott??

mánudagur, desember 13, 2004

U just make me wanna play...

...jamm skemmtilegt lag:D nú er ég búin að vakna, taka sameignina, tala við siggu á msn og borða hafragraut:) þetta er ágætis byrjun á degi þar sem ég vaknaði fyrir tveim tímum og svo held ég bara áfram að gera hann að æði;) (ég verð að hætta með þessa broskalla:s ) (...ohhhh!)
maður er svo fyndinn;) ÆJJJI!!! NO MORE SMILEYS! (skrifar maður það ekki svona?)
heyrðu svo er bara djamm djamm djamm um helgina víííí! salka slaka á afmæli og krissa skyssa heldur útflutningspartí!!! mig dreymdi nú heldur steiktan draum í nótt! sirry og brynjar úr gamla grunnskólanum mínum og sirry var búin að klippa stykki úr flotta brúna jakkanum mínum og brynjar laug í skólastjórann að ég væri alltaf að borða ís í tímum! -og svona til að toppa þetta var sirry með svona oldies gleraugu svona með flugmannasniði en sko ekki sólgleraugu, bara venjuleg! LOL!
"ég held ég kíki á þvotta og þrífi stofuna og eldhúsið"
-Fyrirmyndardóttir Guðlaugs-

miðvikudagur, desember 08, 2004

Óskalisti

Jólagjafaóskalisti!

1. Keramiksléttujárn
2. Spiderman2 á DVD
3. Destiny´s Child - Destiny´s fulfilled
4. Ellen Kristjánsdóttir - Sálmar
5. Friends á DVD
6. Make-up dót
7. ekki föt nema djammboli! (ég á nóg af fötum en það má alltaf eiga fleiri djammboli!)
8. DVD myndir (the family man, sense and sensibility, the importance of being earnest, mel gibson myndir (ekki lethal weapon))

Takk fyrir, ég vil fá þetta! ALLT!

sunnudagur, desember 05, 2004

Próf:(:(:(

Íslenskuprófið á morgun...er ég búin að læra vel?? því get ég ekki svarað eða eins og Mark Darcy myndi segja: I won´t dignify that with an answer!
ég var sem sagt á Bridget Jones´Diary - The edge of reason í gær:) gamanagamana! Colin Firth er FALLEGUR!!! nú er það komið á hreint, fallegustu menn veraldar eru þrír:
1. Bergvin Jónsson 2. Colin Firth 3. Mel Gibson (þessir tveir síðustu eru MJÖG jafnir verða eiginlega að vera saman í 2. sæti)
ég hélt nú að ég væri búin að gera mér grein fyrir fegurð Colin Firth en mér skjátlaðist! hann er every woman´s dream í nýju Bridget Jones myndinni! Solveig Þórðardóttir getur bakkað mig upp;)
mmm...lambalæri í kvöld:) tilbúið eftir 5 svo ég verð að rappa þessu upp;) hahaha ég er að springa úr húmor!
P.S. ef einhver getur bent mér á stað á íslandi eða á netinu þar sem ég get eignast stórt plakat af colin og mel vinsamlegast...