Silly Billy

föstudagur, júní 23, 2006

Kaupmannahöfn!

í dag fórum við bönga im schwimmenbad und...bleeeeeeeeee!! við fórum í svona garð með 3 útisundlaugum og rosafínu grasi til að liggja í sólbaði á:) pabbi frestaði vinnunni sem átti að vera svona mikil þangað til í dag svo núna kemur hann ekkert heim fyrr en í kvöld.. þá förum við á sýningu þar sem hann á skúlptúr og svo beint heim að sofa því við þurfum að vakna fyrir kl 6!! sem er btw kl 4 hjá ykkur!
ég er svona nettbrunnin á hægri handlegg eftir sólbaðið í dag, pabbi vildi endilega að við tækjum sólaráburð með en ég tímdi því nú ekki, það er svo mikið af skýjum! ég er líka hissa, ég er ekkert brunnin í framan, bara á hægri handlegg!!!
mig dreymdi rosalegan draum í nótt, sem mér finnst eins og mig hafi dreymt áður.. ég er búin að segja böngu hann og hún heldur að þetta sé eitthvað mjög djúpt! eitthvað úr fyrra lífi! mig dreymdi nefnilega að ég átti að "yfirgefa þessa veröld" (hehehe, veit að þið kannist við þessi orð frá mér!;) ) en ég var alveg sátt við það, en svo var ákveðið að kippa mér til baka á síðustu stundu, þetta var ekki svona einfalt, nenni bara ekki að útskýra þetta betur hér, auk þess sem ég skynja takmarkaðan áhuga!

fimmtudagur, júní 22, 2006

sól og sumar

Núna er Bönga komin og hefur tekið virkan þátt í að tæknivæða föður vor!! hann er kominn með nýjasta messenger, skype og öll bloggin í favorites;) svo fékk hann fyrsta skype símtalið sitt í gær og það var frá óskari. hann er alveg í sjokki yfir þessu: "ég er komin með þessa tölvu og svo kunna þær bara miklu meira á hana og ég ég ég... (system failure)" heheheheh;) hann sér það samt núna að við dætur hans getum ekki án þessa tóls verið, í gær sátum við hér báðar, bönga á skype og ég að msn-ast!! hhaha! annars er það í fréttum að tjöldin eru komin í hús, kostuðu 25 evrur sem reiknast 2367 kr ísl. já já, eins og þið sjáið lömbin góð hef ég pungað út rúmum þúsund kalli oní ykkur;) ætli ég láti það ekki gott heita, svona bara af því að ég elska ykkur svo mikið, ætla samt ekkert að gleyma þessu sko! múhahaha;)
jæja, svo í dag er það schwimmenbad og eitthvað, pabbi er að vinna soldið lengi svo við bönga erum búnar að yfirtaka íbúðina, hér ómar india arie á háum styrk og mun líklega gera bara í dag...! vá! ég var að muna hvað mig dreymdi!! hahaha ég hafði verið sofnuð (heima á ísl) og samt einhvern veginn ráfað á fætur og eitthvað út og ég hitti baldur sem sagði við mig: chrissi á afmæli þú verður að fara til hans. hann sagði þetta mjög svo drungalega og ég sá fyrir mér að chrissi lægi einhvers staðar í mjög þungu skapi yfir því að hann ætti afmæli! hahahah!! en ég einhvern veginn flaut svona áfram og komst ekkert til baka til chrissa og endaði uppí bíl hjá magnúsi fyrrum bekkjarbróður mínum og við ókum fram á fleiri fyrrum bekkjarfélaga: saadiu, söndru, siggu, ingunni, og einhverja þrjá í viðbót... svo var ég líka að rífast við gunnar um eitthvað hvítt jólatré sem átti að dýfa í bala fullan af vatni til að taka skrautið af auðveldlega! en þegar það kom úr vatninu þá voru engar greinar eftir heldur!!! og ég var eitthvað mjög brjáluð og labbaði til hans:"ertu núna ánægður eða?!?! og þá sá ég að mamma var að próna eitthvað skrýtið, hún var að prjóna áklæði utan um fótboltatuðru fyrir theódór!! jæja.. nóg komið af rugli! þar sem enginn skilur þetta, þetta var víst BARA í hausnum á mér:s:s
hvernig fór argentína - holland í gær? :s ég var svo syfjuð að ég meikaði ekki að klára leikinn!

miðvikudagur, júní 21, 2006

Tyskaland!!!

vá! ég kunni ekki lengur á bloggsíduna mína:s auk tess er allt á tysku í tessari tölvu!! núna er ég ad fara ad "post veröffentlichen" tegar tessi faersla er ready!! hehehe;) jaeja, smá öppdeit: vaknadi úm hálftíu eftir MJÖG lítinn svefn, ég var alveg búin ad snúa sólarhringnum vid, tökk sé....nefni engin nöfn!!! en sólin og svitinn sögdu baedi í kór: DRULLADU TÉR Á FAETUR!! svo ég fó bara ad fá mér tyskan morgunverd: braud, pulsa, sinnp, eplasafi...úti á svölum í náttfötunum:) svo hagraeddi ég bara fötunum og voila! komin í sólbad:) ég var alveg ad íhuga ad fara bara úr ad ofan, en tad er eins gott ad ég gerdi tad ekki tví stuttu seinna kom nágranni pabba á naestu svölum á faetur og heilsadi mér:s hehe... ég hefdi reyndar alveg eins getad verid nakin eins og ég var búin ad hagraeda fötunum!! tessi brúnkugraedgi er rosaleg!
núna er pabbi í vinnunni og bönga ad koma á eftir, hún elsku krúttid missti af vélinni í gaer, hvad er tetta med systur mínar ad geta ekki komid sér á réttum tíma í rútur/flugvélar!?! ég er búin ad finna FM teirra tjódverja: HIT MUSIK ONLY! heheh, tessi ord eru mantra teirrar útvarpstödvar (getur útvarpstöd haft mantra??:s ) en já.... ég er komin yfir söknudinn sem greip mig í gaer, tad er ágaett ad vera laus vid ykkur;)
CRAZY í BERLÍN! *HaLLa*